Fara í efni

Skráning í leiklistarskólann í fullum gangi

Skráning í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar er í fullum gangi. Fullt er í suma hópana en enn er laust í Fornám, Grunndeild og Miðdeild. Unglingadeild er fullbókuð.

Við erum ekkert smá ánægð með áhugann á Leiklistarskólanum og hlökkum mikið til að byrja að kenna og sjá nemendurnar blómstra enn meira undir nýjum áherslum og markmiðum í náminu,“ segir Jenný Lára Arnórsdóttir nýr skólastjóri LLA.

Kennarar í ár eru Jenný Lára, Rósa Ásgeirsdóttir, Ingunn Elísabet Hreinsdóttir og Kolbrún Lilja Guðnadóttir.

Kennsla fer fram í Menningarhúsinu Hofi. Skráning fer fram á Sportabler. Nánari upplýsingar eru á vefnum www.mak.is en Jenný Lára veitir einnig upplýsingar í gegnum netfangið lla@mak.is. Jenný Lára tekur einnig við skráningum á biðlista!

Komdu með í skemmtilegasta skóla landsins!

Til baka