Fara í efni

Skráning í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar hafin

Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar býður alla krakka velkomna í faglegan og skemmtilegan leiklistarskóla fyrir börn og unglinga í 2.-10. bekk grunnskóla.

Í skólanum læra börnin öll helstu undirstöðuatriði leiklistar en fyrst og fremst miðar námið að því að nemendur byggi upp sjálfstraust, hugrekki, aga og tækni, allt með gleðina í fyrirrúmi. Í vetur verða hóparnir ekki stærri en 8-10 börn til að mæta þörfum nemenda betur. Allir kennarar skólans eru fagmenntaðir á sviði leiklistar.

Vorönn 2020 hefst 20. janúar. Kennslan fer fram í Ungmennahúsinu á 4. hæð Rósenborgar.

Önnin er 12 vikur og lýkur með sýningu fyrir aðstandendur í Samkomuhúsinu 25.-26. apríl 2020. Aukaæfingar fyrir loksýningu fara fram í Samkomuhúsinu síðustu tvær vikurnar fyrir lokasýningu, jafnvel helgina áður.

Skólastjóri Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar er Jenný Lára Arnórsdóttir

Allar nánari upplýsingar um Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar má nálgast með því að senda fyrirspurnir á netfang skólans, lla@mak.is

 

Hægt er að innrita nemendur í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar HÉR.

Til baka