Fara í efni

Skráning hafin í Nordic Film Path – alþjóðlegt kvikmyndaverkefni í Svíþjóð fyrir ungt fólk á Norðurlandi Eystra.

Skráning er hafin í Nordic Film Path, alþjóðlegt kvikmyndagerðarnámskeið fyrir ungt fólk á aldrinum 16–23 ára. Um er að ræða einstakt tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi, þróa eigin sögur og vinna stuttmynd frá hugmynd til frumsýningar.

Ungmennastarf og listnám eru veigamikill þáttur í starfsemi Leikfélags Akureyrar sem fer fram í gegnum Leiklistarskóla félagsins, þar sem lögð er áhersla á að veita ungu fólki vettvang til listrænnar þróunar og þátttöku í menningarlífi. Nú bætist Nordic Film Path við starfið sem hluti af þeim tækifærum sem standa ungu fólki til boða.

Námskeiðið fer fram í Järvsö í Svíþjóð dagana 5.–12. ágúst 2026. Á átta dögum fá þátttakendur leiðsögn í öllum helstu þáttum kvikmyndagerðar – handritsgerð, leik, kvikmyndatöku, hljóðvinnslu, lýsingu, klippingu og framleiðslu – og vinna saman að gerð eigin stuttmynda. Verkefnin verða síðar sýnd á opinberum sýningum um haustið í hverju landi fyrir sig.

Aðeins verða valdir átta þátttakendur frá hverju landi og verður valið út öllum innsendum umsóknum. Allir umsækjendur fá svar 8. maí.

Leiðbeinendur verkefnisins eru reyndir fagmenn frá Íslandi, Svíþjóð og Grænlandi – Jenný Lára Arnórsdóttir og Elvar Örn Egilsson, Malik Kleist og Hanne M. Sørensen, og Maya Lindh og Siggi Holm – sem búa yfir víðtækri þekkingu á kvikmyndagerð, allt frá handriti og leik til framleiðslu og markaðssetningar.

Að námskeiði loknu verða þátttakendur hluti af Nordic Film Youth Network, norrænu tengslaneti ungs kvikmyndagerðarfólks sem styður við áframhaldandi þróun og samstarf.

Þátttökugjald er 33.400 kr. Og er rukkað 12.000 kr. Staðfestingargjald eftir að þátttaka hefur verið staðfest, sem er óafturkræft. Unnið er að því að tryggja ferðastyrki, en mögulega þurfa þátttakendur að standa straum af hluta ferðakostnaðar.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 4. maí 2026.

Nánari upplýsingar og umsókn hér

 

Menningarfélag Akureyrar hlaut styrk frá Norðurlandaráði í gegnum Volt fyrir verkefninu Nordic Film Path.

Verkefnið er fjármagnað af Evrópusambandinu. Skoðanir og álit sem hér koma fram eru einungis skoðanir höfundarins, og endurspegla ekki endilega afstöðu Evrópusambandsins eða sænsku stofnunarinnar fyrir málefni ungs fólks og borgarasamfélags (MUCF). Hvorki Evrópusambandið né styrkveitandi bera ábyrgð á þeim.

 

Fyrirspurnir fjölmiðla:

Jenný Lára Arnórsdóttir
jennylara@mak.is
S: 847 6921



Til baka