Fara í efni

Skemmtileg og mikilvæg heimsókn í Hof

Frá vinstri: Eva Hrund Einarsdóttir - framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar, Þorvaldur Bjarni Þ…
Frá vinstri: Eva Hrund Einarsdóttir - framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson - tónlistarsjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Logi Már Einarsson - menningar, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Bergur Þór Ingólfsson - Leikhússtjóri, Halla Jónsdóttir - aðstoðarmaður ráðherra og Baldur Þórir Guðmundsson - sérfræðingur

Logi Már Einarsson menningar, nýsköpunar- og háskólaráðherra , Halla Jónsdóttir aðstoðarmaður ráðherra og Baldur Þórir Guðmundsson sérfræðingur litu í heimsókn í Hof í vikunni til að kynna sér viðamikla starfsemi Menningarfélags Akureyrar. Það voru þau Eva Hrund, framkvæmdastjóri Menningarfélagsins, Bergur Þór, leikhússtjóri og Þorvaldur Bjarni, tónlistarstjóri sem tóku á móti þeim og leiddu þau um Menningar- og ráðstefnuhúsið Hof. Ráðherra og starfsfólk ráðuneytisins fékk þar kynningu á þeim fjölbreyttu verkefnum sem heyra undir starfsemina.

Á starfsárinu verða sett upp 14 tónlistar- og leikverk, ýmist á eigin vegum eða í samstarfi. Auk þess eru haldnir ótal viðburðir á vegum viðburðarsviðs innan veggja Hofs og Samkomuhússins. Til að mynda eru á fjórða tug tónlistarviðburða haldnir í Hofi frá haustdögum til áramóta. Þá eru ótalið fjöldi þeirra funda og ráðstefna sem eru vikulega í sölum og fundarrýmum Hofs.

Næstu helgi eru tvær frumsýningar hjá Menningarfélaginu þegar Leikfélag Akureyrar frumsýnir Elskan, er ég heima? Auk þess setur Sinfóníuhljómsveit Norðurlands upp Söguna af Dátanum í samstarfi við Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar. Stórskotalið söngvara munu einnig heiðra hinn dáða leikara Jóhann Sigurðsson er farið verður yfir 44 ára feril hans sem leikara.

Við slíka upptalningu er vel hægt að sjá að hjá Menningarfélagi Akureyrar er öflugur sköpunarkraftur og dýrmætur mannauður sem hefur stórtæk áhrif á menningu á Norðurlandi. Menningarfélagið hefur lengi bent á að framlag ríkisins til menningarmála sé hlutfallslega mun lægra á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Því er bæði ánægjulegt og mikilvægt að ráðamenn sæki Menningarfélag Akureyrar heim og kynni sér starfsemi þess.

Til baka