Fara í efni

Sjö verk valin í Upptaktinn !!

Þátttakendur Upptaktsins 2026 ásamt Kristínu Sóley og Gretu Salóme
Þátttakendur Upptaktsins 2026 ásamt Kristínu Sóley og Gretu Salóme

Sjö verk eftir ung og upprennandi tónskáld, hafa verið valin til þátttöku í Upptaktinum á Akureyri.   

Höfundarnir, sem í þetta sinn eru á aldrinum 10-12 ára og allir frá Akureyri, hafa þegar hafið vinnuna við það að gera hugmynd að lagi með tónlistarkonunni Gretu Salóme, sem sér auk þess um útsetningu verkanna sjö fyrir hljómsveit. 

Þátttakendur Upptaktsins eru : 

Freyja Rán Kristinsdóttir, 10 ára Glerárskóla, Guðný Lilja B. Ásgeirsdóttir, 10 ára úr Lundarskóla, Hákon Geir Snorrason. 12 ára úr Naustaskóla, Ólöf Birna Kristjánsdóttir, 11 ára úr Síðuskóla,  Ólöf Braga Ívarsdóttir,  10 ára úr Giljaskóla, Sandra Ósk Ragnarsdóttir Lieske,  12 ára úr Lundarskóla og Þorvaldur Adam Ásgeirsson, 10 ára úr Lundarskóla. 

Til hamingju krakkar!!!!

Uppskeruhátíðin  verður sunnudaginn 19. apríl kl 17 þegar tónskáldin og aðstandendur þeirra hlýða á atvinnuhljóðfæraleikara flytja verkin á glæsilegum tónleikum í Menningarhúsinu Hofi.

Hljómsveit Upptaktins skipa tónlistarfólkið:

 Emil Þorri Emilsson – slagverk

Eydís S. Úlfarsdóttir - víóla

Eyþór Ingi Jónsson – flygill

Greta Salóme – fiðla og söngur

Kristján Edelstein – gítar

Ágúst Þór Brynjarsson - söngur 

 

Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Hörpu. Upptakturinn er styrktur af SSNE.

Til baka