Sinfóníuhljómsveit Norðurlands spilar tónlist eftir fjögur íslensk tónskáld á þremur mismunandi viðburðum.
Þessa dagana eru meðlimir Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands uppteknir við æfingar og undirbúning fyrir risastóra viðburði framundan. Þann 8. mars í Hofi mun hljómsveitin heiðra minningu Jón Nordals, eins ástsælasta tónskálds þjóðarinnar. Föstudaginn 6. mars hefði Jón átt hundrað ára afmæli ef hann hefði lifað en hann lést þann 5. Desember 2024, þá 98 ára að aldri. Jón hafði mikil áhrif á íslenska tónlistarsögu með tónverkum sínum og ekki síður í gegnum störf sín hjá Tónlistarskóla Reykjavíkur, en þar var hann skólastjóri í 43 ár. Verkin sem flutt verða á tónleikunum eru Óttusöngvar að vori og Konsert fyrir selló og hljómsveit, einnig verður flutt nýtt verk eftir Daníel Bjarnason á sömu tónleikum.
Á sama tíma er hafinn undirbúningur fyrir páskatónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar þar sem kvikmyndatónskáldið Atli Örvarsson mun flytja sín helstu verk sem að mestu leyti voru samin undir áhrifum æskuára hans í heimabænum, Akureyri. Þar hlýtur hann stuðning frá Söngsveit SinfoniaNord, Þórhildi Örvarsdóttur og raftríóinu Tjöru.
Bjarni Frímann Bjarnason verður hljómsveitarstjóri á báðum þessum viðburðum.
Þessu til viðbótar taka 10 meðlimir Sinfóníuhjómsveitarinnar þátt í uppfærslu Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Birtíngi, sem nú er á fjölum Samkomuhússins. Þar eru flutt 14 glæný lög eftir tónskáldið og tónlistarstjóra Menningarfélags Akureyrar Þorvald Bjarna Þorvaldsson.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur mörg járn í eldinum um þessar mundir og ekki ofsögum sagt að hún bjóði tónlistarunnendum uppá sannkallaða tónlistarveislu í Hofi og Samkomuhúsinu.
Hægt er að tryggja sér miða á alla þessa viðburði á heimasíðu Menningarfélagsins Mak.is