Fara í efni

Síðustu sýningarnar komnar í sölu

Síðustu sýningarnar af grínsýningunni Fullorðin eru komnar í sölu! 

Fullorðin hefur heldur betur slegið í gegn í Hofi en nú er komið að leiðarlokum. Aðeins þrjár sýningar eru eftir í Hofi og því ljóst að hver fer að verða síðastur að tryggja sér miða áður en sýningin heldur suður yfir heiðar og í Þjóðleihúsið! 

„Viðbrögðin og viðtökurnar hafa verið algjörlega stórkostleg og fram úr björtustu vonum. Það jafnast auðvitað ekkert á það að þurfa bókstaflega að stoppa sýninguna af því það er hlegið svo mikið,“ segir Vilhjálmur B Bragason sem leikur og semur verkið ásamt Birnu Pétursdóttur og Árna Beintein Árnasyni.

„Ég, Árni og Birna erum líka sammála um þetta er eitt það skemmtilegasta sem við höfum gert. Það er tilhlökkun að sýna hverja einustu sýningu og við hlökkum til þessara þriggja sem eru eftir hér á Akureyri. Svo er það alveg draumi líkast að við séum að fara með þetta barn okkar í Þjóðleikhúsið í vor - algjörlega geggjað,“ segir Villi.

Næstu sýningar eru:

Fimmtudagurinn 7. október kl. 21
Föstudagurinn 15. október kl. 21
Föstudagurinn 5. nóvember kl. 21

 

Til baka