Fara í efni

Síðasta sýningin af Fullorðin í Hofi

Grínsýningin Fullorðin verður sýnd í Hofi í síðasta skiptið á föstudagskvöldið 5. nóvember.

Sýningin, sem Leikfélag Akureyrar frumsýndi í Samkomuhúsinu í janúar, var fljótlega færð yfir í stóra salinn í Menningarhúsið Hof þar sem hún hélt áfram að kitla hláturtaugar áhorfenda.

Leikarar sýningarinnar eru Birna Pétursdóttir, Árni Beinteinn Árnason og Vilhjálmur B Bragason en þau eru einnig höfundar verksins.

„Þetta er eitt af skemmtilegustu verkefnum sem ég hef tekið þátt í og mér þykir alveg gríðarlega vænt um sýninguna og þær stórkostulegu viðtökur sem hún hefur fengið. Við munum njóta þess í tætlum að sýna lokasýninguna hér á Akureyri á föstudagskvöldið vitandi að Þjóðleikhúsið bíður í vor,“ segir Vilhjálmur.

Nú er síðasti séns að sjá þessa frábæru sýningu hér fyrir norðan. Miðasala er á mak.is.

 

 

Til baka