Fara í efni

Greiðslur til hljóðfæraleikara hækka

Á dögunum funduðu fulltrúar Félags íslenskra hljómlistamanna með fulltrúum Menningarfélags Akureyrar og verkefnaráðnum hljóðfæraleikurum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Á fundinum var tilkynnt að Menningarfélag Akureyrar hyggist hækka greiðslur til verkefnaráðinna hljóðfæraleikara um ríflega 60% fyrir verkefni sem tilheyra tónleikadagskrá Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Auk þessa mun Menningarfélagið hækka greiðslur um rúmlega 10% til hljóðfæraleikara fyrir verkefni undir merkjum hliðarsjálfs sveitarinnar, SinfoníaNord. Þau verkefni snúast um upptökur á sinfónískri kvikmyndatónlist og sinfóníska þjónustu til viðburðarhaldara, hljómsveita, tónskálda og upptökustjóra. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson yfirmaður tónlistarsviðs MAk segir: “ þetta stórt skref fram á við í kjaramálum hljóðfæraleikara á Íslandi og löngu tímabært að greidd sé sama upphæðin fyrir sömu vinnuna á landinu öllu.“

 

Til baka