Samningur um rekstur Menningarfélags Akureyrar til næstu fjögurra ára undirritaður.
19.05.2026
Síðasta föstudag undirrituðu Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri og Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar, nýjan samning um rekstur menningarfélagsins til ársloka 2029.
Samningurinn nær til reksturs Leikfélags Akureyrar (LA) og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands (SN), sem og Menningarhússins Hofs og Samkomuhússins á Akureyri.
Meginmarkmið með starfsemi Menningarfélagsins eru:
- Öruggur rekstur og góð meðferð og nýting opinberra fjármuna,
- að halda úti og efla atvinnustarfsemi í leiklist og sinfónískri tónlist á Norðurlandi,
- að stuðla að auknu framboði og fjölbreytileika í menningar- og listalífi Norðurlands,
- að bjóða upp á fyrirmyndarvettvang fyrir tónlistar- og sviðslistaviðburði, fundi og ráðstefnur á Norðurlandi,
- að leitast við að ná til ólíkra hópa samfélagsins með fjölbreyttu framboði viðburða,
- að bjóða upp á viðburði sem auka menningarlæsi gesta á öllum aldri og tryggja að reglulega verði boðið upp á vandaða viðburði fyrir börn sem og reglulegar kynningar fyrir nemendur leik- og grunnskóla.
Mun þessi samningur einnig tryggja áframhaldandi góðan rekstur Menningarfélagsins næstu fjögu árin.