Fara í efni

Sala á JOKER kvikmyndatónleika hefst á fimmtudaginn

Ný dagsetning 20. nóvember! Sala hefst aftur þann 2. júlí!
Ný dagsetning 20. nóvember! Sala hefst aftur þann 2. júlí!

Óskars- og BAFTA verðlaunatónlist Hildar Guðnadóttur við kvikmyndina JOKER verður flutt á kvikmyndatónleikum af sinfóníuhljómsveit í Hörpu. Stjórnandi verður faðir höfundarins, Guðni Franzson.

Tónleikarnir átti að fara fram í byrjun júní en var frestað vegna COVID-19. Ný dagsetning er 20. nóvember. Viðburðurinn fer fram í Eldborg í Hörpu. Miðasala hefst á fimmtudaginn!

JOKER fékk tvenn Óskarsverðlaun og þrenn BAFTA verðlaun á þessu ári. Þar á meðal hlutu Hildur Guðnadóttir, fyrir bestu kvikmyndatónlistina og Joaquin Phoenix fyrir bestan leik í aðalhlutverki, verðlaun á báðum þessum verðlaunahátíðum. Bæði hrepptu þau einnig Golden Globe og Critics’ Choice verðlaun fyrir framlag sitt til kvikmyndarinnar.

Tónlist Hildar Guðnadóttur er þungamiðjan í tilfinningaþrunginni vegferð aðalpersónunnar Arthur Fleck í kvikmyndinni JOKER. Frábær blanda af hráum, vélrænum hljóðheimi ásamt áleitnum og undurfögrum strengjatónum, oft einungis selló, skapar undirtón vonar og óbærilegrar spennu. Einstök tónlist Hildar Guðnadóttur öðlast nýtt líf í flutningi SinfoniaNord og framkallar alveg nýja upplifun á JOKER, kvikmynd Todd Phillips og margverðlaunaðri túlkun Joaquin Phoenix í aðalhlutverkinu.

Kvikmyndinni verður varpað á risastórt tjald í Eldborg með tali og áhrifahljóðum um leið og kvikmyndahljómsveit Íslands; SinfoniaNord leikur magnþrungna tónlist Hildar.

Velgengni tónskáldsins á undanförnum misserum á sér nær engin fordæmi. Fyrir tónlist sína í sjónvarpsþáttaröðinni Chernobyl hefur hún hlotið Emmy og Gammy styttur auk fjölda annarra alþjóðlegra verðlauna. Fyrir tónlistina í JOKER bætti hún svo meðal annars við BAFTA verðlaunum og tók nú síðast við sjálfum Óskarnum, fyrst Íslendinga.

Hildur Guðnadóttir: „Það er mér mikið ánægjuefni að fá að sjá og heyra JOKER á kvikmyndasýningu með lifandi sinfóníuhljómsveit. Hljómsveitin kom með svo mikla dýpt og næmni í flutningi sínum þegar við hljóðrituðum tónlistina. Við bókstaflega héldum í okkur andanum meðan á upptökum stóð. Þetta var svo fallegt ferðalag og það gleður mig mjög að áhorfendur fái nú að njóta þess á sama hátt."

Leikstjórinn, Todd Phillips: „Ég tala fyrir hönd okkar allra þegir ég lýsi ánægju minni með að JOKER verði synd á kvikmyndatónleikum. Að mínu mati er það frábær leið fyrir áhorfendur til að upplifa áleitna tónlist Hildar Guðnadóttir og verða vitni að för Joaquin Phoenix í heim geðveikinnar í hlutverki Arthurs.“

Miðasala hefst á fimmtudaginn

 

Til baka