Fara í efni

Piparon opnar Slakureyri

Listamaðurinn Aron Snær Fannarsson opnar sýninguna Slakureyri í Nausti í Menningarhúsinu Hofi þann 13. ágúst klukkan 12. 

Aron Snær, annars þekktur sem Piparon, er fæddur og uppalinn á Skagaströnd en býr nú á snotrum sveitabæ skammt frá Blönduósi þar sem hann vinnur sem vélamaður við sorpurðun í Stekkjarvík.

Hann er duglegur að læra, þegar hann er ekki að teikna,“ sagði umsjónakennari minn í foreldraviðtali snemma á grunnskólagöngu minni. Alla mína ævi, hef ég elskað að teikna skrítnar myndir og skrifa skrítnar sögur. En í því hugarrými hef ég fundið hugarró, eyrð og rólyndi sem ég hef fundið hvergi annars staðar. Nú bíð ég ykkur að koma og staldra við inn í þeim hugblæ og njóta afraksturs listsköpunar síðustu mánaða.

Rauðhærður, litblindur, örvhentur og ómenntaður listamaður með mikla ástríðu og hugsjón fyrir listunum heldur nú sýningu í Naust í Hofi. Verkin á sýningunni munu fókusera mikið á háfleygar hugmyndir þar sem sköpunargáfa, húmor og 'utan-kassa' sögur fá að njóta sín. Stíll verkanna er mikið til innblásinn af teiknimyndum evrópskra súrrealista frá 6. og 7. áratug síðustu aldar.

Sýningin verður í salnum Nausti í Hofi frá kl. 12:00-18:00 þann 13.ágúst 2022. Öll velkomin,

Viðburðurinn er styrktur af listsjóðnum VERÐANDI. 

Til baka