Fara í efni

Pétur, Sesselía og Hera fastráðin við LLA

Búið er að ganga frá ráðningu stundakennara við Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar. Fastráðnir kennarar eru Pétur Guðjónsson, viðburðarstjóri Verkmenntaskólans á Akureyri en Pétur hefur kennt, leikstýrt, framleitt og skrifað fyrir leikhús árum saman, Sesselía Ólafsdóttir leik- og stuttmyndagerðarkona og Hera Jónsdóttir leiklistarkennari í Brekkuskóla.

María Pálsdóttir, skólastjóri LLA, segir það hafa komið sér skemmtilega á óvart hversu margir menntaðir og reyndir leiklistarkennarar sýndu starfinu áhuga.

„Og það er með gleði og tilhlökkun sem við kynnum kennara vetrarins; reynsluboltann Pétur, Sesselíu sem hefur kennt við skólann undanfarin ár og Heru sem er nýflutt hingað norður. Þar að auki tryggðum við okkur Völu Fannell leikstjóra og leiklistarkennara í afleysingar. Við bjóðum þau öll velkomin til starfa og hlökkum til vetrarins með þeim,“ segir María.

Skráningarfrestur í skólann hefur verið framlengdur til 6. september en skólinn hefst 7. september. Öll kennsla fer fram í Samkomuhúsinu.

Til baka