Fara í efni

Gloria eftir Vivaldi á páskatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hofi

Hin kraftmikla GLORIA eftir Antonio Vivaldi verður flutt af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt Kammerkórnum Hymnodia og einsöngvurum um páskana!

Á efnisskánni er einnig Concerto í C fyrir tvo trompeta og hljómsveit eftir Vivaldi og Credo in F eftir Antonio Lotti.

Einsöngvarar verða Hildigunnur Einarsdóttir og Helena Guðlaug Bjarnadóttir. Einleikarar á trompet Vilhjálmur Ingi Sigurðarson og Jóhann Stefánsson.

Páskatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands eru jafnan vinsælustu tónleikar dagskrárárs hennar. Undanfarin ár hafa þeir verið endurteknir í Reykjavík fyrir fullu húsi í Hallgrímskirkju og Langholtskirkju. Því miður verður ekki að því núna vegna fjöldatakmörkunum.

Á tónleikunum, sem fara fram á skírdag, mun umdæmisstjóri Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi, Soffía Gísladóttir í Rótarýklúbbi Akureyrar, veita tveimur afburðatónlistarkonum glæsilega styrki sem árlega eru veittir til tónlistarnemenda í framhaldsnámi á háskólastigi. Styrkveitingin fer nú í fyrsta skipti fram utan höfuðborgarsvæðis. Af þessu tilefni syngur Bryndís Guðjónsdóttir sópransöngkona aríu. Um undirspil sér okkar landsþekkti píanóleikari, Helga Bryndís Magnúsdóttir. Auk þess mun Erna Vala Arnardóttir leika La Valse eftir Ravel.

Miðasala er hafin. Athugið;  takmarkað sætaframboð!

 

Til baka