Fara í efni

Páll Óskar og Ragga Rix troða upp í Hofi í dag!

Það verður sannkölluð tónlistarveisla í Hofi í dag kl. 16 þegar hinn eini sanni Páll Óskar slær taktinn í sumarið í Hamraborg. Áður en Palli eignar sér sviðið stígur rapparinn Ragga Rix á stokk og hitar salinn upp.
 
Páll Óskar er þekktur fyrir að trylla lýðinn, unga sem aldna, stóra sem smáa, með ballöðum, diskói, íslenskum dægurlögum og teknótónlist auk dansatriða og geggjuðum búningum og Röggu Rix þarf varla að kynna fyrir Akureyringum. Hún er aðeins 15 ára en hefur komið víða fram m.a. Krakkaskaupinu 2022 og á Einni með öllu 2022 og mun flytja þrjú af sínum bestu lögum; Mætt til leiks, Bla bla bla og Daglegt sjitt.

Tónleikarnir hefjast kl. 16 og standa í klukkustund. Húsið opnar kl. 15.30.

Sumartónar 2023 setja punktinn yfir i-ið á Barnamenningarhátíðinni á Akureyri í ár!

Enginn aðgangseyrir er á tónleikana ! Verið öll hjartanlega velkomin.

 

Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.

Til baka