Fara í efni

Óskar Pétursson og gestir

Það verður enginn svikinn af glæsilegum tónleikum hins söngelska Álftagerðisbróður Óskars Péturssonar, en hann kemur fram í Hofi þann 28. október nk.

Óskar verður ekki einn á ferð því hann mun fá með sér á svið nokkra góða og söngelska vini á borð við Eyþór Inga Gunnlaugsson og Ellen Kristjánsdóttr. Karl Olgeirsson mun svo fara fyrir hljómsveit sem mun styðja við stjörnurnar.

Miðasala er í fullum gangi á www.mak.is

Til baka