Fara í efni

Ólafur Elíasson leikur Bach og Beethoven

Ólafur Elíasson leikur prelúdíur og fúgur eftir J.S. Bach úr „velstillta píanóinu“ og Sónötu Op. 110 eftir L.V.Beethoven í Menningarhúsinu Hofi sunnudaginn 16. október. 

Tónleikarnir eru á vegum Tónlistarfélags Akureyrar með stuðningi frá Menningarfélagi Akureyrar, Menningarsjóði Akureyrar og Tónlistarsjóði.

Miðaverð 3.900, 20% afsláttur fyrir félagsmenn í Tónlistarfélagi Akureyrar. Ókeypis fyrir börn og ungmenni innan við 18 ára. 

Miðasala á mak.is.

Til baka