Fara í efni

Nýr veitingaaðili í Hof

Nýi staðurinn mun heita Eyrin Restaurant.
Nýi staðurinn mun heita Eyrin Restaurant.

Nýr veitingaaðili mun taka við rekstri veitingastaðarins í Menningarhúsinu Hofi í byrjun nóvember. Nýi staðurinn heitir Eyrin Restaurant og mun leggja áherslu á létta rétti í smáréttastíl; rétti sem hægt er að deila yfir góðum drykkjum. Einnig verður boðið upp á bröns um helgar.

„Nafnið var valið með tilvísun í Eyrina á Akureyri og þar sem lögð verður áhersla á íslenska rétti þá vildum við hafa nafnið á íslensku,“ segir Guðmundur Ragnar Sverrisson matreiðslumaður og eigandi Eyrarinnar.

Guðmundur Ragnar útskrifaðist sem matreiðslumaður árið 2000. Eftir útskrift hóf hann störf á Hótel Sögu en árið 2002  flutti hann erlendis og starfaði í Brussel í tvö ár. Þaðan lá leiðin árið 2004 til Sviss þar sem Guðmundur starfaði á ýmsum veitingastöðum sem yfirmatreiðslumaður og lærði m.a. líbanska matargerð. Einnig starfaði hann sem matreiðslukennari í César Ritz hótelskólanum. Í Sviss kynntist Guðmundur eiginkonu sinni, Aðalheiði Hannesdóttir.

Árið 2012 ákvað fjölskyldan, sem þá taldi þrjú börn, að flytja til Íslands þar sem Guðmundur tók þátt í opnun ION hótels á Nesjavöllum og vann þar sem yfirmatreiðslumaður þar til árið 2014. Þegar fjórða barnið bættist í fjölskylduna árið 2014 kom enn eitt tækifærið í hendurnar en þá tók Guðmundur við starfi yfirmatreiðslumanns starfsmannamötuneytis PwC.

Nú toga ræturnar norður yfir heiðar en kona Guðmundar, Aðalheiður er fædd og uppalin á Akureyri og Guðmundur á Sauðárkróki. „Nú eru börnin orðin fimm og ræturnar toga yfir heiðar. Fjölskyldan hlakkar mikið til að koma norður og takast á við þessa spennandi áskorun,“ segir Guðmundur Ragnar.

Menningarfélag Akureyrar þakkar Hallgrími Sigurðarsyni og starfsfólki 1862 Nordic Bistro fyrir frábært samstarf síðustu árin.

Til baka