Fara í efni

Nánast uppselt á Svanavatnið

Það eru aðeins örfáir miðar eftir á Svanavatnið.
Það eru aðeins örfáir miðar eftir á Svanavatnið.

Hátíðarballettinn frá Pétursborg flytur Svanavatnið ásamt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í Hamraborg í Hofi sunnudaginn 24. nóvember. Nánast uppselt er á viðburðinn. 

Verkið er samið við tónlist hins vinsæla tónskálds, Piotr Tchaikovsky og hefur um aldir haft geysilegt aðdráttarafl. Svanavatnið sameinar töfrandi tónlist Tchaikovsky, áhrifamikla ástarsögu og líkamstjáningu sem kallar fram það stórbrotna sem dansararnir hafa fram að færa.

Pétursborg er upprunastaður hins rómaða rússneska balletts sem er innblásinn af Marius Petipa á 20. öldinni. Hátíðarballettinn frá Pétursborg var stofnaður árið 2009 til að endurspegla bestu hefðir og anda Pétursborgarballettsins í sýningaferðum um Evrópu og allan heim. Glæsileiki, þokki og yndislegur léttleiki er það sem einkennir Hátíðarballett Pétursborgar með ferskan innblástur frá tuttugustu og fyrstu öldinni, fullkomna danssýningu prýdda konunglegum búningum og sviðsmynd. Sviðsmynd og búningar eru eftir hinn heimsþekkta Vyacheslav Okunev sem starfað hefur í þekktustu húsum heims sem og Bolshoi Theatre, Mariinsky Theatre og La Scala.

Á síðustu fimm árum hefur Hátíðarballett Pétursborgar dansað við frábærar undirtektir á stærstu sviðum Evrópu, þar á meðal Þýskalandi, Austurríki, Ítalíu, Finnlandi, Svíþjóð, Póllandi, Íslandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Króatíu, Slóvakíu.

Menningarbrú Hofs og Hörpu gerir komu rússneska ballettsins að möguleika. Svanavatnið verður flutt í Hörpu í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands.

 

Aðaldansarar: Elizaveta Bogutskaya, Aleksandr Abaturov, Nikita Moskalets og Irina Khandazhevskaya

Hljómsveitarstjóri: Vadim Nikitin

Listrænn stjórnandi: Sergey Smirnov

Höfundur: Piotr Tchaikovsky, St. Petersburg Festival Ballet

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

Til baka