Fara í efni

Miðvikudjass Majó í Hofi í júlí

Listasumar hefur hafið göngu sína með pompi og prakt á Akureyri af þvi tilefni blæs Majó til Miðvikudjass í Hofi í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar.
Dúnmjúkir djasstónar munu því hljóma í Hömrum í Hofi næstu þrjá miðvikudaga.
Fyrstu djasstónarnir munu líða um húsið miðvikudaginn 1. júlí kl. 16. Þá stígur dúettinn Gangverk á stokk, sem skipaður er Michael Weaver tenór saxófónleikara og Elías Dýrfjörð kontrabassaleikara. Þeir munu flytja fjölbreytt, létt og sumarleg djasslög.
Miðvikudaginn 8. júlí kl. 16 mun THE Tríó, skipað þeim Erlu Mist Magnúsdóttur söngkonu, Hallgrími Jónasi Ómarssyni á gítar og Tómasi Leó Halldórssyni á bassa, leika á alls oddi fyrir djassþyrsta og áhugasama tónlistarunnendur.
Miðvikudaginn 15. Júlí kl. 16 slær Kjass, skipað þeim Fanneyju Kristjáns Snjólaugardóttur söngkonu og Daníel Starrasyni gítarleikara, botninn í þessa Miðvikudadjass tónleikaröð í Hofi. Þau munu flytja létta blöndu af djassi og dægurlögum ásamt vel völdum Kjass molum.
Fátt er betra en djassaðir tónar og sumarstemning í afslöppuðu andrúmslofti þar sem gestir og gangandi geta rekið inn nefið, staldrað við eða dvalið og hallað sér aftur um leið og þeir njóta með öllum skynfærum.
 
Frítt er inná tónleikana – verið öll velkomin.
 
Miðvikudjassinn er samstarfsverkefni Majó og Menningarfélags Akureyrar, styrkt af Listasumri 2026
Til baka