Miðvikudjass í Hofi í sumar!
Nú þegar sumarið er hafið þá er undirbúningur fyrir næsta viðburðavetur hjá okkur í Menningarfélaginu í hámarki. Það stefnir allt í frábæran og viðburðaríkan vetur á öllum okkar sviðum. Leikfélag Akureyrar býður upp á margar sýningar og gestasýningar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands verður með frábæra dagskrá og þá verður sjaldan lognmolla í viðburðahaldi í Hofi. Stórir tónleikar, fjölmargar ráðstefnur og fundir á dagskrá svo eitthvað sé nefnt.
En þó við séum á fullu í vetrarundirbúningi þá verður einnig líf og fjör hjá okkur í Hofi í sumar. Við tökum þátt í Listasumri með Akureyrarbæ.
Í boði hjá okkur verða fjórir dásamlegir djasstónleikar, Miðvikudjass, fjóra miðvikudaga í röð frá kl 16-17 á Móa Bistró. Þá verða girnilegir djass-réttir og happy hour á Móa meðan á tónleikunum stendur.
Fyrsti í Miðvikudjassi verður næstkomandi miðvikudag, 25. júní kl 16-17. Það verður Jón Þorsteinn Reynisson sem töfra fram ljúfa djasstóna á þessum forvitnilega og spennandi Miðvikudjassi. Jón Þorsteinn Reynisson, harmonikuleikari, hefur undanfarin ár tekið þátt í margvíslegum tónlistarverkefnum, og starfar einnig í nokkrum tónlistarhópum sem reglulega vinna að nýjum verkefnum. Má þar nefna Tríó Mýr, ítríó, Hnoðri í Norðri og Tríó Akureyrar.
Annar í Miðvikudjassi verður 2. júlí kl 16-17. Gítarleikarinn Kristján Edelstein og bassaleikarinn Stefán Ingólfsson leiða saman hesta sína á notalegum tónleikum. Kristján og Stefán hafa báðir komið víða við í íslensku tónlistarlífi og skipað sér sess sem virtir og skapandi hljóðfæraleikarar.
Þriðji í Miðvikudjassi verður 9. júlí kl 16-17. Þá munu Eik Haraldsdóttir og Guðjón Steinn Skúlason koma fram. Eik Haraldsdóttir er söngkona frá Akureyri. Hún byrjaði ung í tónlist og hefur verið að flytja tónlist síðan 2013. Hún tók rytmískt framhaldspróf árið 2021 í tónlistarskólanum á Akureyri en hún kynntist djasstónlist almennilega þegar hún hóf nám við Listaháskóla Íslands. Guðjón Steinn Skúlason er fjölhæfur tónlistarmaður og hljóðfæraleikari úr Reykjavík. Hann er menntaður í djass-saxófónleik, bæði úr Menntaskóla í Tónlist og Manhattan School of Music, en auk þess hefur hann reglulega komið fram í hlutverki klarinettu-, þverflautu-, píanó- og bassaleikara.
Fjórði og síðasti en alls ekki sá sísti í Miðvikudjassi verður svo þann 16. júlí kl 16-17. Þá mun djassdúettinn Baby Bop spila blús, swing, bebop, latin og frumsamið efni fyrir gesti og gangandi. Baby Bop byrjaði sem hljómsveit og hefur verið starfrækt síðan 2021 en hefur þó tekið nokkrum breytingum á þessum fjórum árum. Í fyrstu voru það gítarleikararnir Dimitrios Theodoropoulos og Jóel Örn Óskarsson sem stofnuðu dúett með því markmiði að búa til pláss fyrir ungt tónlistarfólk í djassi og spuna. Árið 2022 bætist Elías Dýrfjörð við á bassa og varð til tríó, en nú er Baby Bop dúett.
Hvað er betra en ljúfir djasstónar? - komið og njótið með okkur.
Frítt inn og öll velkomin.
Það er Menningarfélag Akureyrar, Akureyrarbær og Mói Bistró sem bjóða gestum Listasumars á Akureyri að njóta djassaðra tóna í Hofi fjóra miðvikudaga í röð.