Fara í efni

Maximús skólatónleikar í Hofi

Yngstu krökkum í grunnskólum Akureyrar verður boðið á skólatónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands með tónelsku músíkmúsinni Maximús músíkús á mánudagsmorgun í Menningarhúsinu Hofi.

Tónleikarnir eru til heiðurs og minningar Hallfríðar Ólafsdóttur höfundar ævintýrsins.

Sögumaður verður enginn annar en leikarinn Björgvin Franz Gíslason, stjórnandi Ármann Helgason og það er Margrét Lára Rúnarsdóttir sem leikur músina.

Til baka