Fara í efni

Marta Nordal nýr leikhússtjóri LA

Menningarfélag Akureyrar hefur ráðið Mörtu Nordal í starf leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar.

Marta snýr því aftur í Samkomuhúsið, en hún lék fyrir LA á árum áður. Auk þess hefur hún verið leikkona hjá Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu, en undanfarin ár hefur hún alfarið einbeitt sér að leikstjórn.

Árið 2010 stofnaði Marta, ásamt Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, leikhópinn Aldrei óstelandi og hefur hópurinn framleitt fimm sýningar sem hafa vakið mikla athygli; Fjalla-Eyvind, Sjöundá, Lúkas, Ofsa og Natan. Auk þess hefur Marta leikstýrt fjölda verka fyrir útvarp. Um þessar mundir leikstýrir hún söngleiknum Rocky Horror sem verður frumsýndur síðar í mánuðinum í Borgarleikhúsinu.

Marta er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í leiklist frá The Bristol Old Vic Theatre School. Hún hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa innan sviðslista, en m.a. sat hún um langt skeið í stjórn Leikfélags Reykjavíkur og í stjórn Íslenska dansflokksins, auk þess sem hún var forseti Sviðslistasambands Íslands 2013-2017.

Marta kemur til Menningarfélags Akureyrar á spennandi tímapunkti, en fyrir helgi var skrifað undir nýjan samning Akureyrarbæjar og MAk um stuðning sveitarfélagsins við starfsemi félagsins næstu þrjú árin.

Til baka