Fara í efni

MAk og RÚV ræða samstarf

Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri RÚV, kíkti í heimsókn til MAk á dögunum til að ræða mögulega samvinnu á milli RÚV og MAk með það að markmiði að þjónustu almenning betur. RÚV er með öfluga starfsstöð á Akureyri og er að leita eftir samstarfi til að efla enn frekar þann lið í þeirri stefnu Ríkisútvarpsins að auka tengsl þess við almenning um allt land.

Markmið félaganna fara vel saman, þar sem þau vilja bæði stuðla að auknu framboði og fjölbreytileika í menningar- og listalífi Norðurlands. Þannig sjá forystumenn beggja félaga tækifæri til að ná betur markmiðum sínum með því að sameina krafta sína. Mögulegt samstarf sem hefur verið rætt snýr að verkefnum þeirra þriggja sviða sem mynda MAk; Leikfélag Akureyrar, Menningarhúsið Hof og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, auk Fundar fólksins, sem fer fram á Akureyri í byrjun september. Þetta verður í annað sinn sem Fundur fólksins fer fram á Akureyri og er það vel við hæfi að RÚV og MAk vinni saman í tengslum við hátíðina, enda er hún skapandi vettvangur samfélagslegrar umræðu, sem fer vel saman við helstu markmið beggja félaga.

Til baka