Fara í efni

Magnaði Mendelssohn og Myndlistarsýningin Línumál um helgina

Það verða tveir afar áhugaverðir viðburðir hjá okkur á laugardaginn næstkomandi, 7. júní! 

 

Kl 14:00 verður opnun myndlistarsýningarinnar Línumál eftir Vikar Mar. Vikar (f. 1999) er myndlistarmaður búsettur og starfandi á Hjalteyri við Eyjafjörð. Hann vinnur aðallega málverk, þar sem efniskennd, endurtekning og táknmyndir mynda kjarnann í sjónrænni rannsókn hans. Vikar notar aðallega akrílmálningu á striga, en hefur jafnframt þróað verk á fundna fleti og efni úr nærumhverfinu.

Í sýningunni Línumál heldur Vikar Mar áfram rannsókn sinni á eðli málverksins sem miðils merkingar, skynjunar og efnis. Á sýninguni dregur hann fram sjónrænt málkerfi sem byggir á síendurtekinni línulegri mótun. Línan er í þessu samhengi bæði formgerð og tákn, hreyfing og ummerki, sem vísa út fyrir hefðbundin mörk túlkunar.

Kl 20:00 verða svo síðustu VERÐANDI tónleikar þessa sýningarárs verða haldnir hjá okkur.
Hljómsveit Akureyrar heldur tónleikana Magnaði Mendelssohn, fiðlukonsert í E moll og er talinn einn sá fallegasti í heimi.

💍 Miðasala er hér en vakin er athygli á því að Hljómsveit Akureyrar býður öllum þeim sem hafa giftst á árinu að þiggja aðgöngumiða á tónleika sem brúðkaupsgjöf!

Til baka