Fara í efni

LÝSA hefst á föstudaginn

LÝSA – Rokkhátíð samtalsins fer fram í Hofi næstkomandi föstudag og laugardag. Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt og nálgast skráðir viðburðir 50 talsins.

Dagskrá LÝSU hefst á föstudagsmorgni með Stórþingi ungmenna og málþingi BHM um fjórðu iðnbyltinguna. Setning hátíðarinnar fer fram um hádegisbilið þar sem skemmtikrafturinn og fyrrum borgarstjórinn Jón Gnarr ávarpar gesti. Tónlistarfólkið Andrea Gylfadóttir og Kristján Edelstein skapa svo notalega stemningu með fallegri tónlist sinni.

Eftir hádegi standa til að mynda SUNN – Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi fyrir viðburðum en klukkan 15:30 fær fjölmiðlakonan, Guðrún Sóley Gestsdóttir, til sín góða gesti í sófaspjall undir yfirskriftinni Speglar listin samfélagið? Í sófann, til að tjá sýn sína á samfélagið, mæta Jón Gnarr, Matthías Tryggvi Haraldsson, listamaður og Hatari, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, teiknari og tónlistarskona og Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands. Tónlistarmaðurinn Mugison tekur svo nokkur lög.

Laugardagurinn hefst með krafti á fyrirlestrinum Fljúgðu inn í haustið með Sölva Tryggva. Líkt og með aðra viðburði Lýsu er fyrirlestur Sölva opinn öllum. Barnaheill, Landvernd, Umboðsmaður barna, Iðnfélögin, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Íslandsbanki og Alþingi eru á meðal viðburðahaldara á laugardeginum en eftir hádegi er komið að spennandi Myndasögusmiðju Lóu Hjálmtýs. Smiðjan fer fram á Nönnu.

Klukkan 16 verður sófaspjall Sölva Tryggva sem fær til sín skemmtilega gesti til að ræða umdeild málefni. Eftir sófaspjallið er komið að uppistandi Snjólaugar Lúðvíksdóttur og svo upphitun Stefáns Hilmarssonar og Jóns Ólafssonar sem verða með spjalltónleika í Hamraborg um kvöldið.

Það ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi á LÝSU en nákvæma dagskrá er að finna á vefnum www.lysa.is

Hátíðin er sjálfstæð og ekki tengd neinum hagsmunaöflum á Íslandi eða annars staðar. Velferðarráðuneytið og Akureyrarbær styrkja hátíðina.

Til baka