Fara í efni

LMA frumsýnir söngleikinn Ljóska í gegn í Hofi

Kröftugur og metnaðarfullur hópur Leikfélags Menntaskólans á Akureyri hefur undanfarna daga verið hér í Hofi við æfingar og nú er komið að frumsýningu. Í ár setja þau upp söngleikinn Ljóska í gegn, sem byggður er á kvikmyndinni Legally Blond, sem sló eftirminnilega í gegn í upphafi 21. aldarinnar með Reese Witherspoon í aðalhlutverki. Frumsýningin er á morgun, föstudaginn 13. mars kl 20.

Hátt í 120 nemendur koma að uppsetningunni hvort sem það er með leik, dansi, tónlist, markaðssetningu, búningahönnun, leikmyndahönnun, hárgreiðslu, förðun, tæknikeyrslu eða öðrum baksviðsstörfum undir styrkri hönd leikstjóranna Benóný Arnórssonar og Birtu Sólar Guðbrandsdóttur.

Sýningin er sannkölluð gleðisprengja og leikhúsgestir eru dregnir inn í heillandi heim Elle sem ólíklegan laganema. Leikfélag Menntaskólans á Akureyri er þekkt fyrir metnaðarfullar leiksýningar og hefur félagið sett upp sýningar ár hvert frá árinu 1936, engin breyting er nú þar á. Ungir og hæfileikaríkir menntaskólanemendur skipa hverja stöðu á sviði og utan þess sem glæðir söguna sérstöku lífi.

Hallið ykkur aftur og njótið.

Næstu sýningar eru:

1. mars kl 16 og 20

2. mars kl 20

22. mars kl 16 og 20 (ath. síðustu sýningar).

Tryggið ykkur miða á mak.is

 

 

 

 

Til baka