Ljósið í myrkrinu skein skært í Hofi.
Á skírdag hélt Atli Örvarsson ásamt SinfoniaNord stórtónleika í Hofi þar sem flutt voru mörg af verkum Atla sem flest eiga það sameiginlegt að hafa verið samin á Akureyri og/eða undir áhrifum Akureyrar. Hljóðheimur Atla er einstakur og með aðstoð Söngsveitar SinfoniaNord, raftríósins Tjöru og seiðandi raddar Þórhildar Örvarsdóttur mynduðust margoft galdrar á aðalsviði Hofs þennan eftirmiðdag.

Megin þema viðburðarins var ljósið í myrkrinu, þessi týra sem veitir von, hlýju og bjartsýni á dimmustu dögunum. Þannig hóf Atli tónleikana með verkum af sólóplötum sínum sem hann samdi á árunum 2015-2022 á meðan hann bjó á Akureyri. Töfrandi tónar flygilsins fengu þar að njóta sín með frábærum flutningi hljóðfæraleikara SinfoniaNord undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar.

Eftir hlé voru flutt verk sem Atli hefur samið fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti með einni undantekningu en þá var frumflutt verkið Ljós í myrkri (Luminescence). Nútíma sinfónía þar sem klassísk hljóðfæri blandast raftónlist og kór.

Hámarkinu var svo náð þegar svítan úr sjónvarpsþáttunum Silo var flutt en fyrir þá tónlist hlaut Atli BAFTA (British Academy Film Awards) verðlaunin.
Er það mikill heiður fyrir Menningarfélagið að Atli hafi kosið að frumflytja verk sitt Ljós í myrkri, sem og mörg af sínum persónulegri verkum á sviði Menningarhússins Hof. Atli er annar prímus mótor þess að SinfoniaNord verkefnið hafi fæðst á sínum tíma ásamt tónlistarstjóra Menningarfélagsins, Þorvaldi Bjarna Þorvaldssyni. Það var því kærkomið og einstaklega viðeigandi að Atli hafi haldið þennan stórviðburð ásamt SinfoniaNord í heimabænum sínum Akureyri.

Ljósmyndir: Þorgeir Baldursson & Kristján Kristjánsson