Fara í efni

Samkomulag um listsjóðinn Verðandi framlengt til tveggja ára

Á dögunum var endurnýjað samkomulag um rekstur og framlög til listsjóðsins Verðandi.

Samkomulagið undirrituðu þau Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Þórleifur Stefán Björnsson, formaður stjórnar Menningarfélagsins Hofs, og Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar. Undirritunin fór fram í Menningarhúsinu Hofi.

Megintilgangur sjóðsins er að styrkja listafólk til að nýta Menningarhúsið Hof sem vettvang fyrir listsköpun sína. Listsjóðurinn á að auðvelda ungu listafólki og þeim sem starfa utan stofnana að nýta sér þá fyrirmyndaraðstöðu sem Hof hefur upp á að bjóða, stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum í húsakynnunum og nýta þá möguleika sem þar eru fyrir fjölbreytta viðburði.

Ásthildur segir mjög mikilvægt að endurnýja þetta samkomulag. „Þetta fyrirkomulag jafnar stöðu þeirra sem vilja nýta Hof, gefur ungu fólki sértaklega tækifæri og er líklegt til stuðla að enn meiri fjölbreytni í viðburðahaldinu,“ segir bæjarstjórinn.

„Við fögnum því að framhald verður á samstarfinu því Verðandi sjóðurinn skiptir miklu máli fyrir unga listamenn og við fögnum því innilega að geta stutt við verkefnið,“ segir Þórleifur Stefán Björnsson formaður stjórnar Menningarfélags Hofs.

Framkvæmdastjóri MAk fagnar því einnig að Menningarfélagið geti stutt grasrótarstarf í listum með þessum hætti.

Nú þegar hefur verið opnað fyrir umsóknir á heimasíðu Menningarfélagsins, www.mak.is/is/verdandi, þar sem hægt er að sækja um styrki vegna viðburða sem fram fara í Menningarhúsinu Hofi á tímabilinu ágúst 2022 til júlí 2023. Umsóknarfrestur er til miðnættis 5. maí næstkomandi en úthlutað verður úr sjóðnum formlega.

Til baka