Fara í efni

LHÍ tekst á við Hamlet í Samkomuhúsinu

Útskriftarnemendur leikarabrautar LHÍ takast á við Hamlet, eitt frægasta verk William Shakespeare. Sígildur og stórbrotinn, í senn heimspekilegur og blóði drifinn harmleikur sem settur hefur verið á svið um allan heim og á ótal tungumálum.

Í ár er Listaháskóli Íslands í samstarfi við Þjóðleikhúsið og LA og verður verkið frumsýnt í Samkomuhúsinu þann 19. maí og önnur frumsýning í Kassanum, Þjóðleikhúsinu þann 25. maí.

„Útskriftarhópur nemenda við leikarabraut LHÍ árið 2022 hefur síðustu þrjú ár sankað að sér þekkingu til að geta iðkað hæfileika sína að magna upp sammannlegar stundir. Af hugrekki og um leið mikilli auðmýkt ráðast þau á garðinn þar sem hann er hæstur. Þau bjóða ykkur, áhorfendur góðir, að taka þátt og tilheyra þar sem leiksýningin Hamlet eftir William Shakespeare er sett á svið. Leikgerðin er löguð að hópnum, þýðingin er gerð af Þórarni Eldjárn og hefur aldrei áður ratað á fjalir leikhússanna,“ segir Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri sýningarinnar.

Bókaðu miða hér.

Til baka