Fara í efni

Leikskrá Djáknans á Myrká - Sagan sem aldrei var sögð

Verkið Djákninn á Myrká – Sagan sem aldrei var sögð verður frumsýnt á morgun, fimmtudag. Hér er leikskráin. 

Í Hörgárdal er kirkjustaðurinn Myrká. Sagt er að fyrr á öldum hafi þar búið ungur djákni er þjónaði kirkjunni. Hann átti vingott við unga stúlku, vinnukonu á prestssetrinu Bægisá í næsta dal. Hún hét Guðrún, en hvergi er getið um nafn djáknans. 

En hver var þessi djákni? Hverjir komu fleiri við sögu?
Í leikverkinu er sagan skoðuð frá ýmsum sjónarhornum, lesið á milli línanna og skáldað í eyðurnar.  

Sýningin er samstarfsverkefni leikhópsins Miðnættis og Leikfélags Akureyrar. Verkið er annað verkið í röð gróðurhúsaverkefna Leikfélags Akureyrar.

Til baka