Fara í efni

Leiklistarnámskeið fyrir fullorðna í Deiglunni

Vegna fjölda áskoranna býður Leiklistarkóli Leikfélags Akureyrar upp á leiklistarnámskeið fyrir fullorðna. Farið verður í skemmtilegar og krefjandi æfingar og leiki sem efla sjálfstraust, stækka þægindahringinn og virkja ímyndunaraflið. Svo verður líka myljandi gaman! María Pálsdóttir leikkona leiðir námskeiðið ásamt gestakennurum en 15 pláss eru í boði. Kennt verður í Deiglunni í Listagilinu eftirfarandi kvöld:

þri 9. mars 19:30-22
fim 11. mars 19:30-22
þri 16. mars 19:30-22
fim 18. mars 19:30-22
þri 23. mars 19:30 -22

Verð 37.500 (um að gera að athuga hvort stéttarfélög niðurgreiði ekki svona uppbyggilegt námskeið). 

Skráning fer fram á rosenborg.felog.is. 

 

Til baka