Fara í efni

Leikfélag Akureyrar fær sjö Grímu-tilnefningar

Grímuverðlaunin verða afhent á miðvikudaginn í næstu viku.
Grímuverðlaunin verða afhent á miðvikudaginn í næstu viku.

Menningarfélag Akureyrar hlýtur sjö tilnefningar til Grímunnar – íslensku sviðslistaverðlaunanna sem tilkynntar voru í gærkvöldi.

Söngleikurinn Kabarett, í uppfærslu Leikfélags Akureyrar, hlýtur fimm tilnefningar. Auður Ösp Guðmundsdóttir fær tvær, fyrir Búninga ársins og Leikmynd ársins og Lee Proud fyrir Dans- og sviðshreyfingar. Leikhússtjóri, Marta Nordal, fær tilnefningu í flokknum Leikstjóri ársins auk þess sem sýningin Kabarett er tilnefnd sem Sýning ársins.

Fjölskyldusöngleikurinn Gallsteinar afa Gissa, einnig í uppsetningu Leikfélags Akureyrar, fær tvær tilnefningar, í flokknum Barnasýning ársins og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson fær tilnefningu fyrir tónlistina í flokknum Tónlist ársins.

Um besta árangur Menningarfélags Akureyrar er að ræða frá upphafi. Grímuverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 12. júní.

Til baka