Fara í efni

Leikfélag Akureyrar býður konum í leikhús á Kvennafrídaginn!

Eiríkur og Hjörleifur á hundavaði í Kvenfólki.
Eiríkur og Hjörleifur á hundavaði í Kvenfólki.

Leikfélag Akureyrar býður konum á sýninguna Kvenfólk í Samkomuhúsinu þann 24. október. Sýningin hefst klukkan 15.00 og er aðgangur ókeypis. Kvenfólk er 323. sviðsetning Leikfélags Akureyrar og hefur fengið frábæra dóma og mikið lof áheyrenda en þetta er nýtt íslenskt sviðsverk eftir Hund í óskilum. Dúettinn Hund í óskilum skipa þeir Hjörleifur Hjartarsson og Eiríkur Stephensen, en þeir eru bæði höfundar og flytjendur verksins. Þeir eru þó ekki alveg einir á báti heldur njóta fulltingis kvennahljómsveitar í sýningunni. Í Kvenfólk fara þeir Hjörleifur og Eiríkur á hundavaði yfir kvennasöguna undir leikstjórn Ágústu Skúladóttur.
Sýningin hefur verið sýnd fyrir fullu húsi frá því hún var frumsýnd þann 29.september og er uppselt á sýningarnar 20. og 21. október og aðeins örfá sæti laus á sýningarnar 27. og 28. október og miðar fara hratt i nóvember. 

Í tilefni af Kvennafrídeginum hafa LA og Hundur í óskilum ákveðið að bjóða öllum konum á þessa frábæru sýningu án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir. Hægt er að nálgast miða á Kvennafrídagssýninguna samdægurs. Miðasalan opnar klukkan 13.00 í Samkomuhúsinu.

Til baka