Leikfélag Akureyrar á Bransadegi Sviðslistanna
Bransadagur Sviðslistamanna verður haldin í Þjóðleikhúskjallaranum þann 20. maí næstkomandi. Dagskráin er afar fjölbreytt og verða ýmis málefni tekin fyrir en í ár verður sjónum vera beint að sviðslistum á tímum breyttrar heimsmyndar. Velt er upp spurningunum: Hvaða sviðslistir viljum við skapa og fyrir hvern? Hvernig stöndum við saman á óvissutímum?
Þau Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri Leikfélags Akureyrar og Jenný Lára Arnardóttir, skólastjóri leiklistarskóla LA, fara sem fulltrúar félagsins og munu tala fyrir því mikilvæga starfi sem þar fer fram. Bergur flytur erindi þar sem hann fjallar um þau tækifæri og áskoranir sem fylgja starfi sviðslista utan höfuðborgarsvæðisins.
Bransadagurinn er vettvangur þar sem fagfólk úr öllum kimum sviðslista kemur saman til að ræða framtíð sviðslista á Íslandi.
Skráningar og nánari upplýsingar má finna hér.