Dansararnir Eva og Ashima heiðra móðurgyðjuna Deví næsta sunnudag í Hofi með dansatriði þar sem tjáningarform tilfinninganna leysist úr læðingi.
Deví er ímynd virkrar kvenorku í hindúisma og birtist hún í ýmsum myndum, dansinn er tileinkaður tveimur megin myndum hennar, sú fyrri er gyðjan Ganga (hið helga fljót) sem býr yfir hreinsandi og frelsandi eiginleikum. Sú seinni er gyðjan Saraswati sem er gyðja þekkingar, tónlistar, listar, málfars og náms. Dansinn er byggður á taktfastri fótavinnu, handahreyfingum og tilfinningalegri tjáningu sem röð sálma í einstökum Bharatanatyam samleik þeirra Eva og Ashima.
Þarna gefst einstakt tækifæri til að upplifa part af indverskri menningu í gegnum listform dansins.