Fara í efni

Kristinn Óli leikur Baldur í Litlu Hryllingsbúðinni

Kristinn Óli Haraldsson leikur Baldur í söngleiknum Litla Hryllingsbúðin sem LA setur upp í haust!
 
„Ég get ekki beðið eftir því að koma aftur norður! Þetta er minn lang mest uppáhalds söngleikur, með eindæmum heiður að fá vera með. Ég hef lengi litið upp til Bergs og því draumur í dós að fá að vinna með honum. Sjáumst í Samkomuhúsinu,“ segir Kristinn Óli.
 
Kristinn Óli, oft kallaður Króli, hefur áður starfað með LA þegar hann lék Tóta Tannálf í fjölskyldusöngleiknum um Benedikt búálf.
 
Leikstjóri Litlu Hryllingsbúðarinnar er enginn annar en Bergur Þór Ingólfsson. Miðasala hefst á næstu dögum!
Til baka