Fara í efni

Konur hvattar til að mæta í upphlut eða peysufötum

Á kvenréttindadaginn þann 19. júní næstkomandi verður hátíðardagskrá í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri til heiðurs frú Elísabetu frá Grenjaðarstað á 150 aldursári hennar. Þar verða tónverk hennar flutt og einnig frumsýnd heimildamynd um ævi hennar. Fínn klæðnaður er viðeigandi á þessarri hátiðarstundu og viljum við hvetja allar konur til þess að mæta í Hof og klæðast upphlut eða peysufötum.

Tónlistarkonan Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir stendur fyrir verkefninu og hefur aflað sér heimilda um líf, starf og tónlist Elísabetar og hefur nú fengið til liðs við sig fjölbreyttan hóp af listafólki til þess að framleiða með sér mynd um Elísabetu.

Frú Elísabet var ein fyrstu kvenna til þess að gefa út lag á prenti. Í heimildarmyndinni verður hægt að heyra lögin úr sönglagaheftinu hennar Þrá en norðlensku tónlistarkonurnar Fanney Kristjáns, Helga Kvam, Sigrún Magna, Lára Sóley og Ásdís Arnarsdóttir hafa útsett og hljóðritað lög hennar. Er það í fyrsta sinn sem að öll lög hennar hafa verið gefin út sem heilstæð útgáfa.

Frú Elísabet barðist fyrir kosningarétti kvenna á íslandi, tók þátt í stofnun kvefélaga og stofnaði blað til að skrifa greinar um málefni kvenna. Hún var ein af þeim fyrstu til að fá lög sín birt á prenti og einnig til að gefa út sönghefti.

Um þessar mundir stendur yfir söfnun inn á Karolinafund til þess að klára að fjármagna heimildarmyndina og þar er hægt að lesa meira um þessa stór merkilegu konu.

Til baka