Fara í efni

Komdu að perla í Hofi í dag

Í tilefni Barnamenningarhátíðar fer fram Ofurhetjuperl – smiðja í Hömrum í dag kl. 14.

Snorri Valdemar býður gestum og gangandi í perlusmiðju!
 

Snorri Valdemar er 8 ára nemandi í Naustaskóla. Hann er mikill Marvel-aðdáandi og flinkur perlari. Haustið 2022 byrjaði Snorri að perla persónur úr Marvel-heiminum og perluðu ofurhetjurnar hans orðnar hátt í 100 talsins.

Í tilefni perlusýningar Snorra Valdemars í anddyri Sundlaugar Akureyrar verður hann með sérstaka perlusmiðju í Menningarhúsinu Hofi þar sem gestir og gangandi geta perlað sínar eigin ofurhetjur á sumardaginn fyrsta.

Ekkert þáttökugjald.

Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar og unnið í samstarfið við Menningarhúsið Hof.

 

Til baka