Fara í efni

Kjólasala til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis

Á laugardaginn verður kjólasala í Hofi til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. Það eru Kista og Akureyri Backpackers sem standa að viðburðinum.
 
Þau sem vilja gefa kjóla til styrktar Krabbameinsfélaginu er bent á að koma með þá í Kistu í vikunni en verslunin er opin virka daga frá kl. 12-18. Farið verður með þá kjóla sem ekki seljast í Rauða krossinn. 
 
Salan hefst kl. 14, laugardaginn 15. október, í Menningarhúsinu Hofi. Öll velkomin. 
Til baka