Fara í efni

Jónas Hallgrímsson hylltur í Hofi

Jónasarsetur, Menningarfélagið Hraun í Öxnadal, býður til afmælisdagskrárinnar Á íslensku má alltaf finna svar laugardaginn 18. nóvember kl. 14 í Hamraborg í Hofií samvinnu við Menningarfélag Akureyrar. Tilefnið er 210 ára afmæli Jónasar Hallgrímssonar þjóðskálds, náttúrufræðings og nýyrðasmiðs.

Afmælisdagskráin einkennist af tali og tónum. Kristín S. Árnadóttir bókmenntafræðingur verður með hugleiðingu um Jónas Hallgrímsson, líf hans og störf. Vandræðaskáldið Villi leikur sér með orð til heiðurs afmælisbarninu. Barnaraddir munu óma um allt hús þegar eldri barnakór og stúlknakór Akureyrarkirkju syngja lög við texta Jónasar undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur. Þessu næst hristir rapparinn Viljar Níu upp í áheyrendum um leið og hann hyllir nýyrðasmiðinn Jónas. Ljóð ungskálda, sem tekið hafa þátt í samkeppni Amtsbókasafnsins og Akureyrarbæjar, verða lesin upp. Ætli Jónas hafi jafnvel veitt þeim innblástur við skrifin? 

Norðlensku tónlistarkonurnar Þórhildur Örvarsdóttir, Helga Kvam og Lára Sóley Jóhannsdóttir setja punktinn yfir i-ið og syngja og leika að lokum nokkur lög við texta Jónasar

Það er hinn óborganlegi Oddur Bjarni Þorkelsson sem hnýtir dagskrárliðina saman af sinni alkunnu snilld.

Enginn aðgangseyrir er á dagskrána og allir því hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Húsið opnar kl. 13.45.

Uppbyggingarsjóður Eyþings styrkir viðburðinn.

Til baka