Fara í efni

Jólatónleikarnir felldir niður

Jólatónleikum Friðriks Ómars, Heima um jólin, sem fara áttu fram í Menningarhúsinu Hofi 12. desember hefur verið aflýst. Friðrik Ómar segir þetta óhjákvæmilegt í ljósi aðstæðna og ekkert við því að gera nema hefja undirbúning fyrir næsta ár. „En að því sögðu lofa ég því að ég mun blása í alla lúðra í desember að ári, bæði á Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu. Takk allir sem voru búnir að kaupa sér miða og fyrir stuðninginn í gegnum árin. Það verður ærið verkefni að greiða miðana til baka svo ég vona að þið sýnið starfsfólki Hofs skilning og biðlund. Ég óska ykkur alls hins besta og hlakka til að sjá ykkur sem fyrst á tónleikum," segir Friðrik Ómar í tilkynningu til miðaeigenda. 

Allir miðar verða endurgreiddir og eiga miðaeigendur von á tölvupósti frá miðasölu Hofs. 

Til baka