Fara í efni

Jóhanna Guðrún leikur Velmu í Chicago

Stórsöngkonan Jóhanna Guðrún leikur Velmu í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á heimsfræga söngleiknum Chicago. 

Söngleikurinn Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma og hefur unnið til fjölda verðlauna. Chicago var frumsýndur á Broadway árið 1975 og sló strax í gegn en uppsetningin frá árinu 1996 gengur enn fyrir fullu húsi og er ein sú langlífasta á Broadway frá upphafi. Hafa ófáar kvikmyndastjörnur tekið að sér aðalhlutverkin m.a. Pamela Anderson, Brooke Shields og Melanie Griffith. Samnefnd kvikmynd frá árinu 2002 með Catherina Zeta Jones, Rene Zellweger og Richard Gere í aðalhlutverkum sló einnig í gegn og vann til fjölda óskarsverðlauna m.a sem besta kvikmyndin.

„Ég hef alltaf haldið mikið upp á söngleikinn Chicago og það er algjör draumur fyrir mig að fá tækifæri til að leika Velmu,“ segir Jóhanna Guðrún. 

Söngleikurinn Chicago verður frumsýndur í Samkomuhúsinu í janúar 2023. Tryggðu þér miða strax á forsölutilboði hérna!

Til baka