Fara í efni

Hugljúf vetrarstemming í beinu streymi

Á morgun, fimmtudag, fara fram aðrir tónleikar í tónleikaröðinni Í HOFI & Heim þegar söngkonan Þórhildur Örvarsdóttir og píanóleikarinn Alexander Edelstein koma fram í beinu streymi hérna.

Þórhildur hefur starfað sem söngkona bæði hér heima og erlendis og fengist við verk úr úr ýmsum geirum tónlistar en Alexander hefur vakið mikla athygli fyrir einstaka hæfileika og framúrskarandi píanóleik þrátt fyrir ungan aldur. Þau munu færa okkur hugljúfa vetrarstemmingu með tónlist úr ýmsum áttum. 

Það er Menningarhúsið Hof sem býður menningarþyrstum íbúum landsins upp á tónleikaröðina Í HOFI & Heim í desember og janúar en tónleikaröðin er styrkt af Menningarsjóði Akureyrarbæjar.

Tónleikarnir fara fram á sviði Hamraborgar fyrir framan gesti í sal, fjöldinn takmarkast við gildandi sóttvarnarreglur hverju sinni, en þeim verður einnig streymt á mak.is svo áhorfendur geta haft það huggulegt og notið tónleikanna líka í sófanum heima. Tónleikarnir hefjast kl. 20.

 

 

Til baka