Fara í efni

Hrekkjavökustemning á Landsmóti íslenskra lúðrasveita

Það verður sannkölluð hrekkjavökustemning í Hofi á stórtónleikum Sambands íslenskra lúðrasveita sem fara fram á laugardaginn kl. 17. Viðburðurinn er haldinn í tengslum við landsmót Sambands íslenskra lúðrasveita.

Yfir 100 hljóðfæraleikarar víðsvegar af landinu koma saman og munu leika bæði íslenska og erlenda tónlist í hrekkjavöku anda. Hljóðfæraleikarar munu skarta sínum ógurlegustu hrekkjavökubúningum og við hvetjum áhorfendur til þess að taka þátt með því að skella sér í búninga.

Aðgangur er ókeypis og opið fyrir alla, unga sem aldna svo lengi sem húsnæðið getur tekið við draugum og draugabörnum..

Landsmótið er styrkt af Rannís. 

Til baka