Fara í efni

Hér og þar Óla G. í Hofi

Mynd: Skapti Hallgrímsson
Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sumarsýning Menningahússins Hofs, Hér og þar, opnar föstudaginn 21. maí. Tilefni sýningarinnar er afmælisdagur listmálarans Óla G. Jóhannssonar en hann hefði orðið 75 ára þann 13. desember síðastliðinn.

Frá 1993 helgaði Óli sig alfarið myndlistinni og vöktu verk hans athygli víða um heim. Hann hélt fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis. Árið 1997 stofnaði hann, ásamt Lilju eiginkonu sinni, Listhúsið Festarklettur og þar héldu þau ótal sýningar. Á sama tíma sýndi Óli á vegum vegum Opera Gallery í Singapor, Monte Carlo, London og New York. Síðasta sýning Óla var í Listasafni Reykjanesbæjar en hún opnaði 15. janúar 2011 en hann lést fimm dögum síðar.

Sýningin í Hofi stendur til 25. ágúst. 

 

Til baka