Fara í efni

Hátt í 22.000 gestir á aðventunni

16 viðburðir fóru fram hjá Menningarfélagi Akureyrar um síðastliðna helgi, og það er því í nógu að snúast í jólaskreyttum húsakynnum okkar. Fjölbreyttir listviðburðir í Hofi og Samkomuhúsinu hafa laðað að fjölda fólks til að upplifa og eiga töfrandi stundir í menningarhúsunum tveimur nú á aðventunni.

Hvorki meira né minna en 56 viðburðir hafa verið hjá Menningarfélagi Akureyrar frá lokum nóvember. Viðburðirnir, sem hafa heillað og laðað fólk víða að, eru allt frá jólamarkaði til jólatónleika með fjölda listafólks á sviði, árshátíðar, jólasketsaleiksýningar yfir í myndlistarsýningu, lágstemmda jólatónleika og ljúft fjölskylduleikrit.

Hátt í 17.000 manns hafa lagt leið sína í Hof á viðburði frá því því að Jólailmurinn var haldinn 23. nóvember síðastliðinn. Þrír stórir viðburðir eru um komandi helgi; útskrift Verkmenntaskólans á Akureyri og tvenna af Áramótaskopi Ara Eldjárns, það má því reikna með því að um 1.300 manns til viðbótar sæki Hof heim á auglýsta viðburði nú í aðventunni.

Til viðbótar þessum gestum hefur Menningarfélagið tekið á móti um 3.500 gestum í Samkomuhúsinu á sama tímabili. Milli jóla og áramóta verða sýningar á fjölskylduleikritinu Jóla-Lólu, sem fjallar um uppátækjasömu jólasveinastelpuna sem á sér þann draum heitastan að fara til byggða og gefa börnum í skóinn.

Tónlistarskólinn á Akureyri, sem starfræktur er í Hofi, hefur nú haldið tólf tónleika á aðventunni og fengið til sín um 600 áheyrendur. Margir leggja auk þess leið sína í Hof til jólagjafa- og tækifæriskaupa í Kistu.

Það er því ekki hægt að segja annað en að viðburðir sveipaðir töfrum og jólatónum hafa heillað hátt í 22.000 gesti okkar undanfarið og vonandi fyllt hjörtu þeirra sönnum jólaanda í aðdraganda jóla.

Akureyringar, Eyfirðingar, Skagfirðingar og Austfirðingar eru um þessar mundir duglegastir að sækja okkur heim, en Húnvetningar og gestir af höfuðborgarsvæðinu narta í hælana á þeim.

 

 

Til baka