Fara í efni

Hédna – sýning Myndlistarfélagsins á Akureyri opnar á laugardaginn kl. 15

Myndlistarfélagið á Akureyri opnar sýningu sína Hédna laugardaginn 9. maí kl. 15 hér í Menningarhúsinu Hofi.

Á Akureyri starfar fjölbreyttur hópur myndlistarmanna sem endurspeglar vöxt á sviði myndlistar. Menningarfélag Akureyrar vill með samstarfi sínu við Myndlistarfélagið styðja við þá öflugu grasrót myndlistarfólks og gera hana enn sýnilegri fyrir íbúa og ferðafólk, innlent sem erlent. Afraksturinn er sýningin Hédna þar sem ólík tjáningarform myndlistarinnar birtist okkur í verkum sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu, sem veita okkur innsýn í myndheim sinn.

Tvö ár eru síðan Myndlistarfélagið setti upp sýningu í Hofi, sú sýning heppnaðist afbragðs vel enda sýndi hún skemmtilegan þverskurð af myndlist nútímans, líkt og nú. Sýningin í sumar mun án efa heilla fjöldamarga gesti hússins, einhver verk munu jafnvel rata í tösku þeirra eða með póstinum til Ástralíu, Spánar eða Svíþjóðar, eins og raunin var fyrir tveimur árum. 

Myndlistarfélagið var stofnað í janúar árið 2008 og er eitt aðildarfélaga Sambands íslenskra myndlistarmanna. Í því eru nú rúmlega 100 myndlistarmenn, flestir búsettir á Akureyri eða á Norðurlandi, en allir myndlistarmenn geta sótt um aðild að félaginu óháð búsetu. Í félaginu er fjölbreyttur hópur ólíkra myndlistarmanna sem endurspeglar gróskuna í myndlist á landinu.

Myndlistarfélagið rekur Mjólkurbúðina, sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri og kappkostar að bjóða upp á framsæknar og fjölbreyttar sýningar erlendra og íslenskra listamanna ásamt því að sýna verk félagsmanna.

Þetta er fjórða sýningin sem félagar í Myndlistarfélaginu setja upp í Menningarhúsinu Hofi í samvinnu við Menningarfélag Akureyrar og Kistu. 

Hér má sjá nöfn þess listafólks sem á verk á sýningunni.

Til baka