Fara í efni

Hátíðartónleikar Bríetar fara í sölu í dag

Tónlistarkonan Bríet, ásamt Rubin Pollock og Þorleifi Gauki, heldur hátíðartónleika í Menningarhúsinu Hofi 18. desember. Tónleikarnir verða kósý, vinalegir og skemmtilegir, þar sem nánd listafólksins og útgeislun smitast beint til áhorfenda.

Á efnisdagskrá verða lög Bríetar af hennar fyrstu plötu, ‘Kveðja, Bríet’ í rólegum búningi, ásamt vel völdum jólalögum.

Ekki missa af þessu tækifæri til þess að losna frá öllu stressinu í aðdraganda jólanna og hlusta á ljúfa tóna.

Miðasala hefst á mak.is í hádeginu í dag!

Til baka