Fara í efni

Dansverkið Hannah Felicia í Hofi - umræður í lok verksins

Verkið Hannah Felicia fjallar um systrabönd og samband tveggja manneskja. Eða erum við kannski að sjá tvær hliðar á sömu manneskjunni? Sem þráir að vera séð, viðurkennd og elskuð.

Spinn Danskomaniet er atvinnudansflokkur með dönsurum sem eru bæði fatlaðir og ófatlaðir, og hefur aðsetur í Gautaborg í Svíþjóð. Þau hafa mikla ástríðu fyrir listinni að dansa og að ögra steríotýpum þegar kemur að því að skilgreina hvað dans er og hvað hann getur verið.

Hannah Felicia er samstarf íslenskra listamanna og sænskra. Höfundur verksins er danshöfundurinn Lára Stefánsdóttir, en hún notar oft eigin forsendur dansara sem útgangspunkt. Tónlistin er samin af íslenska tónskáldinu Högna Egilssyni. Hljóðhönnun er í höndum Þórarins Guðnasonar. 

Hannah Felicia fer fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 14. nóvember kl. 18. Verkið verður einnig sýnt á Reykjavík Dance Festival seinna í mánuðum. Miðasala í Hof er á mak.is.

Í lok verksins verða umræður við Láru Stefánsdóttur danshöfund. Unnur Anna Árnadóttir dansari og rekstrarstjóri Dansstúdíó Alice mun stýra umræðunum, sem fara fram á íslensku.

Til baka